Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2009

ÉG Á EINA ÓSK OG ÉG BIÐ ÞESS , AÐ ALLIR SEM AÐ HEIMAN FARA ,KOMI HEILIR HEIM !

Gífurlegur fjöldi Íslendinga er komin í  áfangastað úti um allt land og en aðrir eru  leiðinni. Það skiftir svo miklu fyrir hvern og einn að allt fari vel. Að fólk fari gætilega með áfengi, þeir sem með það eru, því að hjá því verður ekki komist.

Og enn ánægjulegra væri að ALLIR létu eiturlyf eiga sig.

Það hafa margir í gegnum árin vaknað í fangaklefa eftir að hafa gert það af sér sem að þá hefði aldrei órað fyrir.

Og það er mörgum ÓYFIRSTÍGANLEG SPOR að horfa framan í fólk eftir slík áföll.

Látum OFBELDI  Í ALLRI SINNI LJÓTU MYND , eiga sig !

Njótið helgarinnar á heilbrgðan hátt og komið öll heil heim.

Góða skemmtun.SmileWinkHeart


mbl.is Vel undirbúin fyrir hátíðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

17 og 1/2 ÁRSLAUN MÍN, DUGÐU HREIÐARI AÐEINS Í 30 DAGA. ! SÍN ER HVER SÚPAN AÐ LEPJA !

ÞEGAR maður fer að skoða hvers konar peninga ryksugur þessir menn voru að þá blikna nú bara margir frægir útlendingarnir við hliðina á þessum ofursjálftökulauna-þegum ! Ákveðnir bankastjórar riðu á vaðið við það að skapa sér laun eftir umfangi svikanna. Þeir kölluðu það ábyrgð!

Enda kom það í ljós, að öll ábyrgðin fellur á þig og mig og engin áhættulaun eða ábyrgðarlaun skiluðu sér til mín.

Ég á ekki einu sinni fyrir lækningum, sem að ég þarf nausynlega að fara í.

Kannski ætti ég að tala við Hreiðar Má, Sigurjón, Þorstein, Björgúlfsfeðga og Bjarna Ármann og vita hvort að þeir geti slegið saman nokkrum krónum fyrir mig.

AAAAAldrei að vitaaaaaaaaaaaa !Sick

Ja,hérna !


mbl.is 270 bankamenn með yfir milljón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ORÐRÉTT: ÓRAUHÆFT AÐ HÆKKA FRÍTEKJUMARKIÐ OG SVO, VERIÐ ER AÐ HORFA Á ENN HARÐARI NIÐURSKURÐARKRÖFUR Á RÍKIÐ Á NÆSTU ÁRUM, SEGI ÁRNI TRYGGINGAMÁLARÁÐHERRA.

ÞETTA finnst mér vera frétt ársins fyri alla Lífeyris og Örorkuþega landsins og er nú afkoman hræðileg í dag. Nú fer virkilega að syrta í álinn fyrir bótaþegana. ERUM við að sjá fram á veruleg AFFÖLL í þeim hópi sem að koma til með að HREINLEGA,   GEFAST UPP í orðsins fyllstu merkingu !

Mér finnst eins og að það sé þrýst á Ríkisstjórnina OG einhverjum öðrum en þeim sjálfum,.. hafi dottið þetta í hug og að þetta verði gert,...... já að sjálfsögðu er hér ASG krumlan á ferðinni ! 

Það er ekki nokkur vafi um það, kæru landar I

En af hverju fáum við Íslenskir launþegar og styrkþegar að vita stöðu mála, hverju er verið að leyna.

 JÁ AF HVERJU ER ALLTAF VERIÐ AÐ LEYNA FÓLKINU Í LANDINU STAÐREYNDUM ?

NÚ viljum við fá að sjá skilmálana frá ASG í eitt skifti fyrir öll !

Ja, hérna !


mbl.is Vilja hærra frítekjumark
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SKILANENDIRNAR ORSÖK DRÁTTARINS Á LÁNINU.........OF LAUSLÁTAR Á PENINGA AÐ MATI ASG !

ÞAÐ er ekki bara Icesave sem að tefur afgreiðslu lánsins frá AGS, segja kunnugir. Þar spilar margt inn í að græna ljósið fáist. Skilanefndirnar eru líka undir smásjánni, HVERNIG þær eru að ráðstafa peningum í uppgjöri gömlu Bankanna, og þá fer maður að spyrja sig. Hvað kemur þeim það við ? Jú, þeir vilja hafa áhrif á hvernig uppgjörinu er háttað !

 Eru þeir með puttanna í öllu ? jÁ, og NÚ eru það líka Lífeyrissjóðirnir sem að þeir vilja skifta sér af ?

Gjaldeyrissjóðurinn er líka eitt bitbeinið, þeir vilja hafa ráð í hendi sér með það hvernig honum er stýrt, svo að þeir hafa meira að segja en þegja !

Ekki eru þau nú flóknari málin en það....... og nú horfa Jóhanna og Steingrímur til loka ÁGÚST.....SEPT...NÓV....DES ?

Hvað finna þeir láninu til foráttu,.....þá ?

Ja, hérna !


mbl.is Vonast eftir láni í lok ágúst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ VAR SKO ALVEG GENGIÐ FRAM AF MÉR VIÐ ÞAÐ AÐ HORFA Á NORSKA RÍKISSJÓNVARPIÐ Í KVÖLD.

Ég er nú ekki vanur að horfa mikið á sjónvarp, en ákvað að taka það rólega í kvöld og var að leita á milli "fríu stöðvanna" hjá Símanum, þá all í einu dett ég inn í nýbyrjaðan þátt um ofbeldi í Jóhannesaborg í Suður Afríku, já það gekk allveg fram af mér.

Það eru yfir miljón eða 2 milljónir sem lifa í útjaðari borgarinnar við svo hörmuleg kjör að það datt af mér andlitið. þessi þáttur var gerður að ég held af BBC.

Og það var fréttamaður sem fékk að fara um hverfin og í fylgd sérstakra sveita sem voru kallaðar BAD BOYS, og svo annarra hópa og svo Borgalögreglunni og ég veit eiginlega ekki hver var að halda uppi reglu og ekki. Þetta var allt KAOS.

Ef einhver stal til dæmis farsíma eða einhverju öðru og FÓLKIÐ náði honum, þá var hann umsvifalaust grýttur og svo helst brendur á staðnum, án þess að það væri kannað til hlítar að hér væri um réttann mann að ræða.

Svo ef að einhver annar hópur náði í þjóf, þá var hann barinn svo til óbóta með einhverri stöng að hann stal aldrei aftur.

þessi hópur notaði þessa refsingu. Og svona gekk þessi hryllingur áfram.

Og þarna var mannslífið ekki dýrmætt, menn voru barðir til óbóta og þökkuðu sig sæla með það !

Lögreglan kom sjaldnast inn í þessi hverfi og það tók minnst 2 klukkutíma að fá sjúkrabíl.

Og vistaverurnar voru ljóslausar og illa þefjandi, þarna lá fólkið í haugum af drasli. þetta var bara hryllingur að horfa á.

Mér skildist að allt þetta fólk væri atvinnulaust og kæmi víða að sem gerði nú málið ekki auðveldara.

Algjör upplausn rikti þarna.

Ég vona að sams konar upplausn á þjóðfélagi verði aldrei hér,eða neitt í líkingu við þetta sem að ég sá í kvöld á Norska Ríkissjónvarpinu.

Við getum svo sannarlega þakkað fyrir allt það,

 sem að við höfum !


ÉG SÉ FYRIR MÉR : ANNAÐ HVORT HLÝÐUM VIÐ KÚGURUNUM EÐA ÞEIR ÆTLA AÐ GERA ÚT AF VIÐ OKKUR !

NÚ verðum við að kæla okkur aðeins og hugsa svo Rökrétt, taka ákvörðun og fylgja henni eftir. Þarna er komið Argentínumynstrið fræga eða þá byrjunin á Boliviu mynstrinu og nefnið þið það bara.

Svo ætlar Evrópusambandið að fara að setj okkur stólinn fyrir dyrnar.

Og þið eruð mörg ykkar sem lesið þetta a fara í faðm þessara kúgara.

 Svo bjóða þeir uppá svona aðstöðu fyrir okkur ,við erum núll og nix í þeirra augum !

26

Ég segi nei fyrir mig.

Ég ætla að kæla mig aðeins , áður en ég pára meira.


mbl.is Afgreiðslu AGS frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STRÁKARNIR ALLIR STÓRIR OG STERKIR..............BERSERKIR ?

Það er alltaf gaman og nauðsynlegt heilsunnar vegna að fagna gleðitíðindum eins og af Íslenska Handknattleiksliðinu U19 ára. það eru engir aukvisar sem að þeir hafa lagt á leiðinni í úrslit og þetta minnir mann óneitanlega á árangur A landsliðsins á Olymíuleikunum í KÍNA.

Nú er keppt í Túnis sem er með sterkt lið en strákarnir unnu Túnisbúana þó tæpt væri.

Svo er það úrslitaleikurinn við KRÓATÍU og þann leik ætti RUV sjóvarp að sýna okkur..

Þeir eru komnir jafnlangt og A landsliðið !

Áfram ,Áfram strákar ! Áfram Ísland !


mbl.is Ísland leikur til úrslita um heimsmeistaratitilinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BLESSUÐ BÖRNIN LJÓMA AF GLEÐI OG SPENNU OG HORFA Á PABBA SINN TÝNA ALLT TIL FYRIR FERÐALAGIÐ !

ÉG HEF ALLTAF GAMAN AF BÖRNUM, Þau eru svo einlæg saklaus og full af alvöru í öllu sem að þau taka sér fyrir hendur að það gefur manni ámælda gleði að horfa á þau og sérstaklega ef að þau vita ekki af manni.

Og ekki vantar að þau vilji bera tvöfalda ,þrefalda þyngd´sína til þess að létta undir með pabba og mömmu.

Ein fjölskyldan hérna í blokkinni sem að ég bý í var einmitt að leggja upp í ferðalag og það var mikil eftirvænting í hjörtum smáfólksins, sérstaklega þeirra sem voru í yngri kantinum.

það er óskandi að allt verði gaman og öll komi þau heil heim, þá er helgin vel heppnuð.

 AÐ HVÍLAST VIÐ SÓLARLAG ER TOPPURINN Á TILVERUNNI og þessi mynd er tekin fyrir Vestan. Höf ókunnur.

Copy of XWatta peran við SKUTULSFJÖRÐ

Nú er aðal umferðarþungin að fara að byrja í dag og fólk fer í allar áttir.

Ég vona bara að engin komi nálægt ökutæki sem að hefur  drukkið áfengi.

EFTIR EINN EI AKI NEINN,

GÓÐA FERÐ....góða ferð....GÓÐA FERÐ AÐ HEIMAN OG HEIM.

 ( þessi grein varð óvart fréttatengd....bið afsökunnar)


mbl.is Hreiðar Már greiðir mest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

UM ÞAÐ BIL 25 ÍSFIRÐINGAR SOFA Á HVERRI NÓTTU OFAN Á HÁKARLI , EN VITA EKKI AF ÞVÍ, NEMA !

Í DAG er stórt hús neðarlega í Fjarðarstræti... það er fallegt hús með fullt af íbúum. Og lífið þar gengur sinn vanagang, og allir eru sáttir við sitt.Og þeir dást að stóra húsinu sínu (Blokkinni). þaðan er ómengað útsýni yfir á  Snæfjallaströndina og þeir horfa á skipin fara og koma og bifreiðarnar koma og fara fyrir Arnarnesið og meira segja flugfarþegarnir fara ekki framhjá þeim, þeir koma fljúgandi fyrir ARNARNESIÐ ! 

En verð ég að segja ykkur leyndarmál, sem að ég hef geymt með mér í rúm 50 ár og geri aðrir betur .

Við neðribæjar-púkarnir lékum okkur oft í sandfjörunni neðst á mótum Fjarðarstrætis og Tangagötu svona NV af Tangargötunni.

Einu sinni sem oftar ætluðum við krakkarnir að leika þar , en viti menn.

Þarna var dráttarvél að grafa stóra holu og enginn mátti koma nálægt . Já, mjög stóra holu og þegar dráttarvélin var búin að því þá náði hún í 3 stóra HÁKARLA og dró og velti þeim ofan í........ Síðan var mokað sandi yfir allt (nóg var af honum).

Þarna átti að kæsa sælgætið.

Löngu seinna var svo grafið og náð í Hákarlana,

það var bara smá vandamál............þeir fundu bara tvo,

þá var eftir einn.

Og hann er þarna,

rétt undir frárennslislögnunum í húsinu

og ef að það fer að koma

ljúf hákarlalykt  upp úr niðurföllunum.Sick

Hákarlinn

Þá er búið að finna hann !LoL

Góða og blessaða Verslunarmannahelgi !Smile


LÁGKÚRA STJÓRNVALDA OG ÞAU MEIRA SEGJA SKIRRAST EKKI VIÐ AÐ BLÁSA ÞAÐ ÚT !

RÍKISSTJÓRNIN leitar alls staðar að peningum þar sem lítil von er um peninga. það er hjá ellilífeyrisþegum, öryrkjum,fjölskyldufólki í láglaunageiranum og  í fámennum hópi svikara innan þesasara raða.  En hróflar ekki við HVÍTFLIBBA-GLÆPALÝÐNUM ÞAR SEM ALLT ER UPPI Á BORÐUNUM. OG ábyggilega er þetta allt löglegt !

Getur einhver sagt mér hvað veldur ? Hvers konar réttlæti er í gangi ?

Þetta er ömurlegasta Ríkisstjórn sem uppi hefur verið þegar tekið er tillit hverju hún lofaði og hvað hún hefur staðið við !

þeir í Ríkisstjórninni (hafa 7 föld laun mín) eru ekki í stöðunni að finna fyrir tekjutapi og það verulegu, 50% verðhækkun á matvælum (nærri lagi), hærri húsaleigu , lyf og læknakostnaður og allt heila klabbið.

Það hækkar allt nema launin !

Það er munur á 140,þúsund hjá Ellilífeyrs og Öryrkja og 850.þúsund með öllu hjá Ráðherra, sem hefur þar að auki niðurgreiddan mat á Alþingi og hinar og þessar sposslur !

þúsundir Íslendinga verða á götunni í vetur og það stenir í það að það verði BARÁTTUMÁL því það á ekki fyrir húsaleigu. Það lætur EÐLILEGA mat.lyf,lækna ,sérfræðinga ganga fyrir og þá er þetta langt komið hjá mörgum.

Ég veit um mig og nokkra sem að ég þekki vel og lítilega, og erum öll í verulegum vandræðum,

Og það er  blákaldur SANNLEIKURINN !

Ja, hérna !


mbl.is Ríkissjóður greiðir út 15 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband