Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

MEGA POWER SPRON SKAL HANN AÐ HEITA. ÞVÍ ÉG SÉ FYRIR MÉR ÖFLUGAN BANKA MEÐ HEIÐARLEGA EIGENDUR OG STJÓRNENDUR !

ÞETTA  er það sem kallast gleðifréttir úr því sem komið var. Og ég tala nú ekki um fólkið sem fær strax vinnu við Nýja Spron.Og fleiri og fleiri starfskraftar munu bætast við í framtíðinni eftir því sem að hann vex !

OG ÉG VERÐ FLJÓTUR Í GAMLA BANKANN MINN !

ÉG ER AÐ ÞVÍ, ÞESSA DAGANA

AÐ LEITA AÐ JÁKVÆÐUM FRÉTTUM

OG ÞETTA ER EIN ÞEIRRA SVO SANNARLEGA.

Ég er strax farinn að leita að annarri !Heart


mbl.is MP banki eignast SPRON
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÓG AF PENINGUM TIL AÐ REISA 11 KM LANGAN MÚR MILLI RÍKRA OG FÁTÆKRA ! BRASIL HERE I COME !

Ég hef alltaf verið fylgismaður þeirra sem MINNA MEGA SÍN, vegna þess hve óréttlátri framkomu þeir eru beittir og oftast varnarlausir í þeim efnum.En ég veit að alltaf mun verða bil milli Ríkra og Fátækra og er og er .

Mér hefur aldrei litist á það sem að BRASILÍSK yfirvöld hafa gert til að kúga sína þegna.

Fræg eru morðin í frumskógum Brasilíu á FRUMBYGGJUM, frumbyggjarnir  sem hafa ræktað þar lönd sér og öðrum til framfærslu.

NEI,þeir voru fyrir..... það þurfti að ryðja skógana fyrir hinu og þessu.

Námum ýmiss konar og alls kyns framreiðsla fyrir alþjóðafyrirtæki og svo framv.

FRÆG ERU MORÐIN Á BÖRNUNUM Á GÖTUM BRASILÍU FRAMIN AF SÉRSVEITUM SEM STOFNAÐAR ERU UPP ÚR LÖGREGLU LANDSINS OG MYRÐA BÖRNIN MISKUNARLAUST.

 Þau eru  fyrir í samfélaginu.

Þau hafa verið yfirgefin af foreldrum sínum og þurfa að berjast fyrir tilveru sinni hvern dag og það er ekki spurt um hvað þarf að gera ......allt er gert til að halda lífi. 

NÚ Á AÐ REISA MÚRINN FRÆGA 

11.KÍLOMETRAR TIL ÞESS AÐ HALDA ÞESSUM ÓÞJÓÐALÝÐ FRÁ

FRAMSÆKNUM FERÐAMÖNNU SEM ERU KOMNIR TIL AÐ SKEMMTA SÉR OG SÍNUM.

þAÐ ER EKKI VERIÐ AÐ LEGGJA PENING Í AÐ AUÐVELDA FÁTÆKA FÓLKINU LÍFIÐ. 

FYRST SKAL TRYGGJA SKEMMTANASVÆÐIÐ FYRIR ÞÁ SEM EIGA NÓG FYRIR ÁGANGI SVELTANDI FÓLKSINS JAFNT BARNA SEM FULLORÐINNA.

Ég  hef alltaf verið viðkvæmur fyrir ljótleika af þessu tagi !

Hér á okkar landi er gnægð af öllu og enginn þarf í raun og veru að kvarta,einhvern veginn blessast allt saman.

Og það skiftir miklu máli að vera hógvær, æðrulaus og treysta Drottni fyrir sínum þörfum. það er nú ekki alltaf að takast hjá mér ................en mér fer fram og fyrir það þakka ég.

Góðar stundir. 


mbl.is Reisa múr milli fátækra og ríkra í Rio de Janeiro
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EINMITT NÚNA ER ÞÖRF FYRIR ÞIG AÐ LESA ÞETTA LJÓÐ SEM VAR SAMIÐ FYRIR 60 ÁRUM, EN Á FULLT ERINDI ,INN Í AÐSTÆÐUR OKKAR Í DAG.

OFT hef ég litið í þessa ljóðabók en þetta ljóð,hefur alltaf farið fram hjá mér og líklega vegna þess að ég hef verið að leita ljóða sem snérust ekki um þessi mál...held ég. Hvað um það, hér er LJÓÐIÐ OG LESIРÞAРVEL !

      

       GUÐSRÍKI Á JÖRÐ.

Menn ræða svo títt um,hve veröld sé villt

og vond, svikul og hál,

hve örbirgð sé mikil og auðæfum spillt,

já,óskir og vonirnar tál.

En hvar fellst hið illa, sem fárinu spýr

og feigðar-kufl veröldu spann?

Í manninum sjálfum sá mein-hugur býr,--

og mennirnir stafrækja hann !

 

Hve fögur er jörðin, sem Guð okkur gaf

með gnægtir af dýrasta auð,

og umhverfis löndin hið auðuga haf,

því alls nægtir skaparinn bauð.

En mennirnir lifa við hungur og harm,

og harðstjóra-ógnir og tál,

með trega og vonbrigða-tárin um hvarm

og trúlausa,vanþroska sál.

 

En lögmálið æðsta,sem lífinu er veitt,

var letrað af skaparans hönd:

að bræður og systkin vér öll séum eitt

og eigum að nema hér lönd.

En þetta er brotið,og því er vor jörð

í þrengingu fjötrunum háð,

blómlegu löndin að blóðvelli gjörð,

og bræðralags-hugsjónin smáð.

 

En mannlífsins dimmu og dapurleik skín

hin dýrðlega kærleikans sól,

hið lamaða og þjáða hún laðar til sín

og lífgar það veika sem kól.

Ó,mætti hún skína í hjartnanna heim

með hreinleikans göfgandi mátt

til vaxtar og eflingar verðmætum þeim,

er vinna að bræðralags sátt.

 

Hve sælt yrði lífið,ef vér öll sem eitt

hér ynnum í kristinni trú.

Það hörmungum fengi í hamimngju breytt ,

sem heiminum ofþjaka nú.

Ef sannleikur stjórnaði orðunum einn

og athöfnum kærleikans dyggð,

þá ágirnd og illmælgi iðkaði ei neinn,

en einlægni ríkti og tryggð. 

 

Ef mennirnir samhuga sýndu þér þor

í sókninni á kærleikans braut,

þá yrði til heilla hvert  einasta spor,

og auðna þeim félli í skaut.

Því bræðralags-elskunnar bjartsýnis-trú,

sem blessaður Frelsarinn gaf,

er einasta leiðsögn, sem eiga menn nú

um ólgandi villunnar haf.

 

Tengist því bræður og treystið það heit,

að takmarkið guðstrúin sé.

Og gangið með Kristi í gæfunnar leit,

og græðið svo lendur og fé.

Sé bræðralags-hugsjónin háleit og hrein

að hjartnanna lífsanda gjörð,

mun þroskast hið góða,en þverra öll mein,

og þá verður guðsríki á jörð!

 

Höfundur er Ingibjörg Sigurðardóttir, rithöfundur og húsmóðir

frá Kálfshamarsvík.   Þetta ljóð er úr ljóðabókinni,

          Hugsað heim.


EKKI BREGST ÚTVARP MATTHIDUR NÚ FREKAR EN FYRRI DAGINN. MILK SHEIK OG SKÍTUGIR SKÓR Í SEÐLABANKANUM OG ALZHEIMER VIRUS ÞAR INNI !?

Engum Íslenskum frammá-afturliggjandi stjórnmálamanni hefur líðst að tala yfir og fyrir landslýð eins og Davíð Oddsyni. Hann átti showið í dag,kom fljúgandi " Óvænt" í pontu. OG hvað..................................................?

Ekkert nema að minna fólk á

að hann sé sá eini sem geti stjórnað Landinu.

geti haft vit fyrir öllum,

viti manna best hvað sé best fyrir alla.

Þetta minnir mig á ákveðinn Rómverskan Keisara í "den".

Ekki fleira um þessa uppákomu, "  A ThunderGhost in the Hall ".

Góðar stundir.


mbl.is Víkingar með Samfylkingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HELDRI, ELDRI KARLREMBUKYNSLÓÐIN AÐ KVEÐJA,BJÓÐA NÚ KONUM OG UNGA FÓLKINU AÐ KÍKJA Á MIÐPUNKT ALHEIMSINS Í VALHÖLL. EN HVAÐ !

FYRIR EKKI MÖRGUM ÁRUM,ÞÁ ÁTTU SJÁLFSTÆÐISMENN EKKI PENINGA FYRIR VIÐHALDI UTANHÚSS AÐ SÖGN KJARTANS GUNNARSSONAR Í FRÆGU VIÐTALI.En þeim tókst að skrapa peninga fyrir viðhaldinu utanhúss !

það er í raun og veru innanhúss þar sem að hlutirnir ske,en ég ætla ekki að tala um það nema í þröngu tilliti.

Það er hann Pétur Blöndal,nú er nefnilega að renna upp fyrir mér hvers vegna hann náði svona góðri kosningu í prófkjörinu.

Flokksfélagar hans vita hve skemmtilega hann getur komið þjóðinni á óvart með fáránlegum hugmyndum um eitt og annað,auðvitað rata einstöku sinnum réttmætar yfirlýsingar hans á borð landans.....en það er sjaldnar og sjaldnar.

Í hádeginu kom frétt af Landsfundi Sjálfstæðismanna yfirlýsing þess efnis að hætt yrði að nota pólitískt vald til þess að nota Bankana til þess að hyggla Flokksgæðingunum umfram aðra þegna þjóðfélagsins,

og þá sagði títtnefndur PÉTUR BLÖNDAL að ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON hefði hringt nýlega í stjórn Landsbankans til þess að greiða fyrir 450.milljóna láni til einhvers(man ekki).

Og það er ekki gott mál ,  HVER SEM Á Í HLUT. 

En ég spyr er SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN LAUS VIÐ ALLT SVOLEIÐIS Í GEGN UM TÍÐINA HJÁ SJÁLFUM SÉR.

EÐA Á SÍÐUSTU MÁNUÐUM FYRIR OG EFTIR HRUN.

 ER HERRA, PÉTUR BLÖNDAL TILBÚINN

 AÐ GEFA OKKUR UPPLÝSINGAR ÞÓ EKKI VÆRI NEMA UM EINA

SVOLEIÐIS FYRIRGREIÐSLU  SEM AÐ HANS FLOKKUR STÓÐ FYRIR AF

MÖRG ÞÚSUND SVOLEIÐIS MÁLUM Í GEGN UM 17 ÁRIN ÞEIRRA.

Mér datt þetta svona í hug Pétur minn, OG.

 LÍTTU ÞÉR NÆR PÉTUR MINN,  ÞAÐ ÞURFUM VIÐ ÖLL AÐ GERA !


mbl.is „Þurfum að opna flokkinn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MÉR SÝNIST AÐ FÉLAGSHYGGJUAFLIÐ VISTVÆNA HAFI ÓSJÁLFSTÆÐA FÓLKIÐ UNDIR !

Nótt og Dagur 27 mars 2009. 004 Það er betur og betur að koma í ljós að fólkið vill gjörbreytingar á Ríkistjórn Landssins. Það vill nú sjá ný andlit og reynslubolta með í væntanlegri Ríkisstjórn. Og er það hverjum deginum ljósara að fólkið í landinu         VILL ANNAÐ EN SJÁLFSTÆÐISFLOKKINN Í FORYSTU,NÆSTU ÁRIN !

Skipbrotið er mikið....en ég ætla EKKI AÐ AFSKRIFA ÞÁ Í FRAMTÍÐINNI.

það á eftir að koma fram vel frambærilegt FÓLK MEÐ GÖFUG GILDI...

TRÚI ÉG !

En mikið vatn mun renna til sjávar áður en það verður.

"Sá sem ekki kann að taka TAPI.... Á EKKI SKILIÐ AÐ VINNA".

SVO MÖRG ERU ÞAU ORÐ.

OG ÞÁ KOM SÓLIN UPP Í GRAFARHOLTINU.Heart´

(ég er nú ekki klárari en þetta ,auðvitað átti myndin að vera neðst......  það tekst bar næstLoL).

...


mbl.is VG upp fyrir Sjálfstæðisflokk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER EKKI SVOLÍTIÐ SEINT Í RASSIN GRIPIÐ,AÐ NEITA SAMVINNU VIÐ AÐGERÐARSTJÓRNINA OG ÆTLA SVO AÐ POPPA UPP MEÐ EITTHVAÐ HALDLAUST Á LANDSFUNDI. UMRÆÐAN ER Í ÞINGINU !

Ég ætla nú ekki að fara að leggja Sjálfstæðisforystunni lífsreglurnar á sínum innabúðarsamkomu,heldur er það sem vekur eftirtekt mína með þetta Evrópusambandsrugl þeirra. því þeir vita ekki hvort þeir eru að koma eiga að vera eða hitt þá heldur...hvað ruglinu veldur !

Ég mun aldrei trúa því sem Geir tönnlaðist á dag eftir dag að þeim hefði ekki verið boðið að koma að stjórnlagafrumvarpinu. Þeir voru bara yfir aðra hafnir að taka þátt í einnhverri samsuðu sem ekki væri fædd hjá þeim.

Afsökunarbeiðni Geirs kom en ósköp fannst mér hún rýr að ætla sér að kenna stjórnarandstöðunni um ófarirnar !

Það sem að ég fylgdist með á Alþingi var áberandi hjá Sjálfstæðismönnum að meðan þeir Óstjórnuðu var það að þeir virtu ALDREI fyrirspurnir stjórnarandstöðunnar fyrr enn eftir margar vikur eða mánuði.

Ég hef aldrei horft upp á aðra eins kúgun á réttkosnum fulltrúum þjóðarinnar eins og í tíð Sjálfstæðismanna og Framsóknar.

 Mér er ekki vel við að rangfæra upp á fólk og ef að ég er að fara með rangt mál þá vinsamlega leiðréttið þið það hérna hjá mér !

Góðar stundir.


mbl.is Leggja til tvöfalda atkvæðagreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FRÁBÆRAR VIÐTÖKUR ! EN GLEYMDIST EKKI EINHVER ? FJÖLSKYLDUHJÁLPIN BÝR VIÐ ÖMURLEGA AÐSTÆÐUR !

Satt best að segja fór ég að hugleiða þetta á meðan SÖFNUNIN stóð yfir. Fjölskylduhjálpin gefur mat til fjölmargra af ÖLLUM þjóðernum 1 sinni í viku og er með ömurlega aðstöðu rétt fyrir neðan sjálft SÝSLUMANNSEMBÆTTIÐ.

það býr við ömurleg þrengsli.

 Fólk er að bíða  langt út á götu í alls kyns veðrum,jafnvel með kornabörn á handleggjunum og misjafnlega á sig komið !

Er þetta forsvaranlegt ?

Afhverju er ekki gert neitt fyrir þessi samtök ?

 Og eins Mæðrastyrksnefnd sem er nú elst í þessu öllu saman. Þær konur búa við þröngan húsakost.

En á báðum þessum stöðum vinnur Elskulegt fólk og ekkert nema gott skilið og kærleiks þakkir.

Mér datt þetta svona í hug !


mbl.is 15 milljónir söfnuðust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ALDREI HAFA FLEIRI ÞINGMENN FARIÐ Á TAUGUM SÍÐAN JÓHANNA STEIG Í FORSÆTI AÐGERÐAR-RÍKISSTJÓRNARINNAR

AÐ VERA SVIFTUR ÖLLU ÞVÍ SEM VAR SVO SJÁLFSAGT ER EKKI SVO AUÐVELT AÐ MEÐTAKA.En hún mælir skörulega til þingheims að hún ætli sér ásamt sínum flokki og einnig Vinstri Grænir +Framsókn að koma þessum aðgerðarpakka í gegn um Alþingi  SVO AÐ HANN VIRKI.

 Ekki eru allir sammála um það og reyna hvað þeir geta til að standa í vegi fyrir því að þessi mál nái fram að ganga.

 Ég gleymi aldrei fyrsta AFGERANDI MÓTMÆLADEGINUM fyrir utan ALÞINGI Í VETUR

þegar fólk var með háhreystin að þá var

TIL UMFJÖLLUNAR Í ÞINGINU MÁL UM AÐ LEYFA SÖLU BJÓRS

 Í ALMENNUM VERSLUNUM

 OG MUNIÐ ÞIÐ HVER VAR AÐ FLYTJA ÞAÐ MÁL ? 

(ÉG MAN ÞAÐ VEL.)

 

 ERU ÞAÐ SVOLEIÐIS MÁL SEM BRENNA Á ÞJÓÐINNI ? Woundering

 MÁ ég  persónulega biðja um bitastæðari mál fyrir þjóð mína !

 


mbl.is Vilja afgreiða 22 mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÉG ÓSKA GEIR VELFARNAÐAR Í ÞVÍ SEM AÐ HANN TEKUR SÉR FYRIR HENDUR OG LÍKA BIÐ ÉG ÞESS AÐ HANN FÁI BÓT MEINA SINNA !

22 ÁR á Alþingi og margs er að minnast hjá honum þó svo að hans flokkur hafi verið við stýrið í 17 ár af þessum 22 árum, þá hefur ekki alltaf verið róið lygnan sjó hjá honum og samferðafólki hans,.

Ég er einn af þeim sem ekki hefur huggnast stefna Sjálfstæðisflokksins  eða öllu heldur hvað þeir hafa aðhafst í gegnum tíðina.

 Sumt hefur heppnast ágætlega annað HRAPALEGA.........!

En þetta á ekkert að vera yfirferð yfir afrek og ekki afrek,

Mig langaði bara að kveðja Geir í sátt og samlyndi því stundum var ég orðhvass á stundum í hita leiksins.

Honum varð á og mér hefur orðið á  og ekki ætla ég að gerast dómari yfir honum eða mér.

Geir Haarde.  Gangi þér og þínum vel um ókomna framtíð .


mbl.is Geir kveður og X heilsar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband