ÉG SKORA Á ÞIG AÐ LESA ÞESSA FRÉTT SEM FYLGIR PISTLI MÍNUM Í DAG. !

Já, ég er nánast orðlaus hvernig kaupin á eyrinni voru gerð þegar Ríkisbankarnir voru seldir . Þetta er eins og í Matadori , þar sem að helminginn af spjaldinu vantar. Ég velti því fyrir mér, hvernig gátu menn fengið endalausan pening LÁNAÐAN til kaupanna, og nú þegar á að standa skil á þeim þá..........................!

Hvernig getur almenningur áttað sig á því, HVERNIG að ákveðnir menn í Íslensku þjóðlífi gátu bara rétt sé svona náð sér í MILLJARÐA ofan á MILLJARÐA ( ÞÁ) TIL AÐ KAUPA BANKA ?

Svarið er í gegn um PÓLITÍSKA áhrifamenn.

Þeir hefðu aldrei getað þetta öðruvísi og hverjir voru þeir sem höfðu völdin í Bankamálum á þeim tíma ?

Segja menn svo að PÓLITÍKUSAR  séu saklausir !

Ó, nei..............því fer fjarri !


mbl.is Dýrt fyrir ríkið að selja banka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvernig er með allar hinar einkavæðingarnar? Það er greinilega ekki nóg að skoða bara bankana, verum minnug þess að þetta hyski var dæmt fyrir ólöglega sölu á Íslenskum aðalverktökum. 1300 miljónir græddu þeir sem keyptu, nokkrum mánuðum eftir kaupin.

Einkavæðingarefndin átti að segja af sér þegar ráðherranefndin tók völdin. Þeir ráðherra sem sátu í þessari nefnd voru Davíð, Halldór, Geir og Valgerður Sverrisdóttir. Þetta er fólkið sem sveik þjóð sína. Jón Sveinsson Framsóknargebill var í einkavæðingarnefnd, fékk kúlulán hjá KB banka upp á 30 miljónir og á hlut í íslenskum aðalverktökum. Finnur Ingólfsson er stóreignamaður eftir einkavinavæðingarbullið hjá þessu fólki. Svo er fólk til í að kjósa þessa flokka. 

 Að hugsa sér að enn skuli 37% þjóðarinnar styðja Sjálfstæðis og Framsóknarflokk. Eru þessi 37% svona óheiðarleg og siðlaus, eða hvers vegna styður fólk menn og flokka sem eru svona gjörspilltir? Ég skil það ekki. Hvenær ætlar fólk að opna augun og henda þessum flokkum á öskuhauga sögunnar?

Þetta er svo ógeðslega siðspillt að maður á ekki til eitt einasta aukatekið orð yfir þetta, hvað var Sjálfstæðis og Framsóknarflokkur eiginlega að pæla, að láta svona eins og þeir eigi landið og allt innan þess?

Venjulegu og heiðarlegu fólki er algjörlega misboðið og ég get ekki að því gert annað en að undrast það að enn skuli þriðjungur þjóðarinnar styðja Íslandsmeistarann í spillingu, Sjálfstæðisflokkinn! Hvernig getur nokkur manneskja tekið ákvörðun um að styðja þá sem gera svona gegn þjóð sinni? Ég bara botna það ekki. Ég gæti aldrei verið í vinnu fyrir fólkið í landinu og réttlætt fyrir sjálfum mér að gera svona hluti, aldrei. Mér finnst þetta vera álíka óheiðarlegtog að vera sjálfur að stela frá þjóðinni.

Það virðist vera staðreynd að sjálfstæðisflokkurinn er ekkert annað en skjól fyrir glæpamenn úr viðskiptalífinu.  Svona svipað og Framsóknarflokkurinn.

Valsól (IP-tala skráð) 9.7.2009 kl. 11:28

2 Smámynd: Þórarinn  Þ Gíslason

Sæl/l Valsól.

Ég tel að nú sé það að koma í ljós þó að það megi heimfæra flest upp á Sjálfsstæðis og Framsókn, að aðrir stjórnmálamenn eru ekki síður spilltir.

 Það er bara annað yfirbragð á því.

Þetta er hryllilegt  ástand sem að þjóðin stendur frammi fyrir.

Kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason, 9.7.2009 kl. 15:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband