ALLIR ÞEKKTU HANN. ALLIR ÞEKKTU ÞENNAN HÓGVÆRA HREFNUVEIÐIMANN !

HREFNU GESTUR, er að byrjaður að mála bátinn sinn, svona barst fréttin um litla bæinn minn þegar voraði vestur á Ísfirði. Allir í bænum þekktu Hrefnu Gest (Gestur hét hann,blessuð sé minning hans).Hann var svo miklvægur hlekkur í bæjarlífinu þá.

Ég man líka þegar hann kom með fyrstu  Hrefnuna og hún var dregin upp í fjöru í DOKKUNNI.

 Rétt hjá þar sem að hann átti heima.

Þá var tekið til við að skera og við krakkarnir stóðum í hópum að horfa á þenna svaka stóra fisk verða að beinagrind á ekki mörgum tímum.

Hann skar bita af Hrefnunni í ferninga setti á vigtarkrók á stykkin nefndi verðið og svo fylltust vasarnir hjá Hrefnu Gesti af peningum og margir voru litaðir  eftir fingur hans.

Og það var bros á andliti allra .

 Það var steikt hrefna í matinn hjá allflestum og elduð í mismunandi útgáfum.

Svo fór Hrefnu Gestur aftur í haf í leit að annari og Hrefnu Gestur var , er  og verður alltaf hluti af sögu Ísafjarðar.

Já, það eru aðrir tímar nú.

BrosumSmile því hrefnan getur ekki brosað.


mbl.is Hrefnuveiðar að hefjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Líndal Gestsson

Sæll Þórarinn.

Ég deili þessum minningum með þér. Kjöt af ungri hrefnu, hvað er betra.

Bjarni Líndal Gestsson, 24.5.2009 kl. 17:18

2 Smámynd: Å s d ì s   Sig

Ég brosi líka.

Å s d ì s Sig, 24.5.2009 kl. 17:31

3 Smámynd: Þórarinn  Þ Gíslason

Sæll Bjarni.

Gaman að sjá þig hér og vertu velkominn.

Já, það var alltaf sérstök stemming þegar Gestur sigldi inn sundin og myndi hann skera  á bæjarbryggjunni eða bara í fjörunni heima hjá sér.

Takk fyrir innlitið og Kær kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason, 24.5.2009 kl. 18:56

4 Smámynd: Þórarinn  Þ Gíslason

Sæl Ásdís.

Hvað er betra en glæný hrefna a la pipar og salt.

Það var nú kryddið í den.

Kær kveðja

Þórarinn Þ Gíslason, 24.5.2009 kl. 18:58

5 Smámynd: Haraldur Hansson

Ekki man ég eftir hrefnu Gesti en partur af æskuminningum mínum frá Ísafirði er þegar Bæsi gamli kom að landi á skektunni sinni og seldi rauðmaga í fjörunni.

Haraldur Hansson, 25.5.2009 kl. 10:03

6 Smámynd: Þórarinn  Þ Gíslason

Sæll Haraldur.

Það er ekki ólíklegt að þú munir eftir Hrefnu Gesti, hann var svo HÓGVÆR og barst ekki á,vann sína vinnu þögull og aldrei fór neitt fyrir honum. Svona man ég hann.

Bæsi( Bæring) var hressari og alltaf fjör í kringum hann. Einu sinni veiddi ég óvar RITU niður í Dokku og Bæsa fannst það nú ekki mikð mál að redda "púkanum" eins og við litlu strákarnir vorum kallaðir.

Takk fyrir innlitið. Kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason, 25.5.2009 kl. 13:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband