Tónlistarspilari
Um bloggið
Þórarinn Þ.Gíslason
Nýjustu færslur
- 13.9.2010 FAGFÓLK, HVERS KONA R FYRIRBRIGÐI ER ÞAÐ OG HVERRA FORRÉTTIND...
- 6.9.2010 ALGJÖRLEGA SAMMÁLA LÆKNUNUM Í EFRA BREIÐHOLTI OG MJÓDD. HVA...
- 24.8.2010 HVAÐ ERU UNG-LIRFUR Í ALRÆÐISFLOKKI JÓHÖNNU AÐ IBBA GOGG,OG ...
- 24.8.2010 NÝTT, FULLKOMIÐ ÆFINGAPLÁSS FYRIR FREKARI AÐGERÐIR ÓÁNÆGÐRA V...
- 23.8.2010 ÉG HELD AÐ JÓHANNA OG AÐRIR TINDÁTAR ESB, EIGI AÐ SKAMMAST SÍ...
Færsluflokkar
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
316 dagar til jóla
Feb. 2012
| S | M | Þ | M | F | F | L |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
| 26 | 27 | 28 | 29 |
Bloggvinir
-
heidathord
-
audurm
-
asthildurcesil
-
johanneliasson
-
bjarnigestsson
-
vestfirdingurinn
-
ksh
-
iceberg
-
kolbrunerin
-
larahanna
-
kiddikef
-
naflaskodun
-
finni
-
skagstrendingur
-
dagsol
-
neytendatalsmadur
-
morgunblogg
-
lillo
-
jonsnae
-
jennystefania
-
jonlindal
-
minos
-
asgerdurjona
-
vistarband
-
rosaadalsteinsdottir
-
zeriaph
-
aglow
-
arncarol
-
doralara
-
skralli
-
olijoe
-
katlaa
-
kristbjorghreins
-
roslin
-
gudruntora
-
martasmarta
-
hallarut
-
blindur
-
amman
-
disdis
-
thjodarsalin
-
ruth777
-
tara
-
juliusvalsson
-
sigurbjorns
-
tigercopper
-
windows7
-
ulli
-
valgeirskagfjord
-
laglegust82
-
bryndiseva
-
ernafr
-
vonin
-
liljabolla
-
jonaa
-
gmaria
-
alit
-
tungirtankar
-
heidistrand
-
heidihelga
-
maeglika
-
daggardropinn
-
katrinsnaeholm
-
vilhjalmurarnason
-
halkatla
-
baenamaer
-
jonvalurjensson
-
rannveigh
-
jenni-1001
-
stingi
-
liso
-
ingabaldurs
-
trukona
-
theodorn
-
siggahulda
-
adhdblogg
-
hector
-
solthora
-
forvitin
-
krist
-
muggi69
-
sjos
-
hebron
-
ghordur
-
snorribetel
-
erlan
-
hognihilm64
-
esv
-
sigvardur
-
rl
-
hafeng
-
coke
-
gotusmidjan
-
vert
-
siggisig
-
thormar
-
jakobk
-
hugarro
-
reykas
-
skarfur
-
garibald
-
siggith
-
evaice
-
nonniblogg
-
beiker
-
seinars
-
kaffi
-
birgirsm
-
jon-o-vilhjalmsson
-
jonerr
-
kketils
-
steinibriem
-
trumal
-
himmalingur
-
agbjarn
-
halldorjonsson
-
konnadisa
-
olafurthorisson
-
topplistinn
-
loftslag
-
fullvalda
-
kaffistofuumraedan
-
ansigu
-
faktor
-
bofs
-
fun
-
bassinn
-
kmani
-
joklamus
-
saemi7
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.2.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 44
- Frá upphafi: 488871
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
KEMUR MÉR EKKI Á ÓVART OG ALLS EKKI FJARRI LAGI AÐ SÉ RÉTT. ÞAÐ VITA ÞEIR SEM RANNSAKAÐ HAFA BIBLÍUNA. 17.JÚNÍ ?
10.12.2008 | 08:11
Jú,allir vita það að jólin eru úr fornri tíð kölluð þetta og hitt og þar á meðal Sólrisuhátíð. Og afhverju höldum við upp á fæðingu Jesús á þessum tíma (Núna í lok Desember) get ég ekki svarað.þá eins og nú um það leyti byrjar að lengja daginn og menn höfðu ástæðu til að fagna og gera það enn.
Þar sem að ég er ekki einn af þeim sem hafa kafað djúpt í þessar hugsanlegu staðreyndir,læt ég mér nægja að fylgjast með og dreg svo mínar ályktanir út frá því.
Mér finnst það frábær tíðindi að landið okkar skuli hafa sama fæðingardag og Jesús ef að með óyggjandi hætti fengist staðfest !.Já,einu orði sagt frábært og skýrir í því framhaldi margt fyrir mér, sem koma á fram í náinni framtíð og verður spennandi(alla vega fyrir mig) að fylgjast með.
17. Júní er þá dagur Jesús eftir allt saman, !
Og okkar líka !
Skyldi þó ekki vera satt ?
|
„Jesús fæddist 17. júní“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:14 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Af mbl.is
Fréttir frá Amnesty
- Samstöðufundur með íbúum Mið-Austurlanda og Norður-Afríku
- Vorið sem aldrei varð: mannréttindabrot stjórnvalda í Aserbaídsjan
- Góðar fréttir: Jabbar Savalan leystur úr haldi í Aserbaídsjan
- Hvettu stjórnvöld í Túnis til að gæta þess að mannréttindi séu tryggð í nýrri stjórnarskrá Túnis
- Rússland og Kína bregðast mótmælendum í Sýrlandi á vettvangi öryggisráðsins
- Góðar fréttir: dómstóll í Slóvakíu úrskurðar gegn aðskilnaði Róma-barna í skólakerfinu!
- Góðar fréttir – janúar 2012 – mexíkósk stjórnvöld gangast við ábyrgð vegna nauðgana
- Uppreisnarár: ástand mannréttinda í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku
- Enn betri fréttir af bréfamaraþoninu – þrefalt meiri þátttaka en í fyrra!
- Frábær þátttaka á bréfamaraþoninu – tvöföldun frá því í fyrra!
- Minnum á mannréttindasamkomu í Egilsstaðakirkju 10. desember



Athugasemdir
Þetta er sennilega ekki satt, því miður. Jesús fæddist nánast örugglega að hausti, sennilega í lok september, og er það miðað við að fjárbændur voru farnir að sækja fé sitt þegar hann fæddist. Stjarnan sem leiðbeindi vitringunum var hinsvegar samkvæmt Biblíunni kraftaverk til að benda þeim í átt til Jesú.
Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 10.12.2008 kl. 09:03
Sæll Helgi .
Þórarinn Þ Gíslason, 10.12.2008 kl. 09:28
Fjárbændur að sækja fé sitt segir Helgi!
Ég hélt að þetta hefðu verið fjárhirðar, þ.e. menn sem gættu sauða sinna alla daga ársins. Það er á fáum stöðum í heiminum þar sem sauðfé er látið ganga laust eins og á Íslandi og þykir mér frekar ólíklegt að það hafi tíðkast á þessum tíma á þessum stað. Til þess hafa verið allt of miklar hættur, bæði vegna rándýra en einnig vegna aragrúa þjóðarbrota á svæðinu sem litu kannski ekki sömu augum á eignaréttinn.
Þetta er auðvitað bara ágiskun hjá mér en það sem skiptir í raun mestu máli hér er að við höldum upp á fæðingu frelsarans og gildir þá einu um hvenær ársins fagnað er.
Gunnar Þór Gunnarsson, 10.12.2008 kl. 10:02
Samkvæmt mínum heimilidum fæddist Jesús að öllu leyti um sumar, í kringum maí /júní. Hann fæddist EKKI 24. desember og hann fæddist EKKI fyrir 2008 árum, meira fyrir 2010 árum eða 2011, man ekki nákvæmlega.
Björgvin Magnússon (IP-tala skráð) 10.12.2008 kl. 10:35
Aðalmálið fyrir mér er að hann fæddist og hann lifir í dag!
Góðar stundir kv bev
Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir, 10.12.2008 kl. 11:05
Smá fróðleikur.
Samkvæmt The New Encyclopedia Britannica,, var 25. desember, fæðingadagur Míþrasar, persneska ljósguðsins og... dagurinn sem helgaður var hinni ósigrandi sól.
Íris Edda Jónsdóttir, 10.12.2008 kl. 12:27
Sælir Gunnar Þór og Helgi.
Mér fannst þetta svolítið skondin rannsókn .Þess vegna skellti ég þessu hér fram.
Þórarinn Þ Gíslason, 10.12.2008 kl. 12:28
Sæl Brynsís Eva.
Ég er þér HJARTANLEGA sammála.

Þórarinn Þ Gíslason, 10.12.2008 kl. 12:29
Sæl Íris Edda.
Altaf kærkomin fróðleikur,
Svo bara hvað gerum við gerum við hann. !
Þakka þér kærlega fyrir framtakið.
Þórarinn Þ Gíslason, 10.12.2008 kl. 12:31
Það er kaþólsku kirkjunni að þakka að haldið er upp á afmæli Krists 25. des (heiðni) og er það nokkuð athyglisvert að í fjölmörgum, oftast kaþólskum málverkum af Jesú má sjá sól eða sólargeisla á bak við höfuð hans... þegar maður veit um tengingu 25. desember við sólardýrkun.
Karl, 10.12.2008 kl. 12:50
Þar sem ekki hefur tekist að sanna það með óyggjandi hætti að Jesús Kristur Jósepsson Guðsson hafi verið til, þá verður að teljast afar hæpið að ræða um fæðingardag hans. Ef þið segið að til séu sannanir þá eruð þið sjálfsagt að tala um skrifaðar heimildir en slíkum heimildum er ekki treystandi einum og sér, sérstaklega ekki þeim sem skrifaðar voru í fyrndinni, en þið trúið sjálfsagt því sem þig viljið trúa og það böggar mig lítið :)
Björgvin Gunnarsson, 10.12.2008 kl. 12:59
Það er auðvitað hárrétt hjá þér að það er út í hött að ætla að reikna út fæðingardag Jesú út frá stjörnunni, en það er álíka fjarstæðukennt að ætla að reikna hann út frá sögunni af hirðingjunum.
Hjalti Rúnar Ómarsson, 10.12.2008 kl. 16:53
Sæll Karl.
Ég persónulega aðhyllist EKKI Kaþólsku kirkjuna,og það er mitt val.
Kær kveðja.
Þórarinn Þ Gíslason, 10.12.2008 kl. 19:23
Sæll Björgvin.
Auðvitað átt þú ekki að láta neitt "Bögga " þig. Þú hefur þitt val með þínum vilja,hann var þér gefinn,þú einn veist hvað þér er fyrir bestu og ekki ætla ég að afvegaleiða þig.
Kær kveðja.
Þórarinn Þ Gíslason, 10.12.2008 kl. 19:25
Sæll Hjalti Rúnar
Sín eru hver Vísindin,
Sín er hver tæknin þá notuð er.
Vangaveltur kom og fara!
En eftir stendur það að Jesús er til og Jesús er lifandi ,Amen.
Kær kveðja.
Þórarinn Þ Gíslason, 10.12.2008 kl. 19:30
Þórarinn, það er gott. Kaþólska kirkjan er jú aðeins kristin á yfirborðinu ef skoðað er hana nánar.
Karl, 11.12.2008 kl. 19:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.