ÞURFUM VIÐ ÞÁ NOKKUÐ AÐ BYGGJA OKKUR NÝTT" DRAUGASJÚKRAHÚS" , BARA STÓRA HEILSUGÆSLU- UMFERÐAMIÐSTÖÐ !

Aldeilis fínn árangur. Á ég að trúa því að við höfum sólundað milljörðum í þá vitleysu að fólk var of lengi í rúmunum inni á spítulunum og ekki komið auga á það fyrr. Nú er ég að ræða almennt á allar deildir sjúkrahúsanna um allt land. 

Og ég velti því þá fyrir mér, er grundvöllur fyrir nýju hátækni sjúkrahúsi ef að það á fyrir því að liggja að vera hálftómt hlaðið öllum þeim hátæknibúnaði sem til þarf  þannig hátæknisjúkrahúsi svo hægt sé að sinna því sem til er ætlast . Eða er ég svona skammsýnn.

Nú eru erfiðir tímar í þjóðfélaginu og er þá réttlátt að fara af stað með svona Hágæða og Hátækni Sjúkrahús með fækkandi sjúklingum.

Það er búið að loka helling af deildum í kerfinu núna og hátt í 300 manns eru búnir að missa vinnuna.

Margir nýútskrifaðir læknar erlendis koma ekki heim útaf ástandinu hér og að flestum líkindum koma aldrei heim.

landspitalinn.jpg

 

 

Og svo er um hjúkrunarfólk og svo framvegis.

Er ekki komin tími fyrir stjórnvöld að hugsa þetta dæmi upp á nýtt og hlusta ekki á AGS.

Mér finnst alltof mikið gert í því

að BARA BYGGJA

án þess að hugsa þetta til enda.

Mér datt þetta svona í hug. !


mbl.is Sjúklingar liggja skemur inni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já um leið og verið er að þrengja almennt að sjúkrastofnunum, loka deildum og segja upp fólki.  Þeim er ekkert heilagt þessari velferðarstjórn alþýðunnar. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.3.2010 kl. 11:49

2 Smámynd: Þórarinn  Þ Gíslason

Sæl Ásthildur.

þetta  "verkefni " bygging nýs sjúkrahúss er ekki að ganga upp hjá mér ....sama hvernig ég skoða það.

Ekki næsta áratuginn !

Kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason, 16.3.2010 kl. 12:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband