Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

AÐFANGADAGUR JÓLA,HVAÐ MAÐUR VAR BÚINN AÐ BÍÐA OFT EFTIR HONUM ?

AÐFANGADAGUR HAFÐI ALLTAF SVONA VISSA DULÚÐ YFIR SÉR,en hann hafði líka mikið af eftirrvæntingum sem gátu brugðist til beggja vona.  Hver kannast ekki við það.Vínberjaskipið "Klikkaði" það komu bara röndóttar skyrtur ekki HVÍTAR.Ballskórnir voru búnir í Reykjavík,og svo framvegis.!

En Dómkirkjuklukkan sló alltaf klukkan 18.00 og þá byrjaði Hátíðin.Ég hef ekki tölu á öllum þeim jólagjöfum sem hafa farið um mínar hendur. Til mín eða Frá mér.! Eða öll Jólakortin

.En innst inni er þetta eitthvað meira, en Pakkahátíð,það fer að koma í ljós eftir því meira viti sem manni er gefið.En það verður nóg að gera í dag hjá allflestum og það er best fyrir mig að reyna að hvílast eitthvað.

Heyrumst þegar líður á daginn.!

 

 


ÞORLÁKUR HINN HELGI, MINNIR OKKUR Á SIG, Í DAG, OG HVAÐ MEÐ ÞAÐ ? JÚ, NÚ SKALTU BORÐA SKÖTU ÞAR TIL AÐ ÞÚ STENDUR Á BLÍSTRI !

ALDREI FANNST MÉR SKATAN GÓÐ,en í seinni tíð allveg meiri háttar matur með öllu gummsinu,Hangifloti, Hamsatólg, og 4ja lita mör og ég veit ekki hvað og hvað. þegar ég var barn,þá lét ég ekki sjá mig heima þann daginn.

Reyndar kom ég helst ekki fyrr en daginn eftir. Fékk að gista í ómenguðu húsnæði. En svona var þetta og eru sjálfsagt margir sem þola alls ekki lyktina enda amoníakfýla ekki í hávegum höfð.

En við megum ekki gleyma því að fátt er svo með öllu illt að ei boði gott. Það er ekki til betri hálshreinsir en amoníakbræðingurinn.

Gangið hægt um gleðinnar dyr í dag,

 þegar Skatan birtist á borðum ykkar. !Sick

 

 


GÓÐIR ÍSLENDINGAR, Í DAG SKULUM VIÐ FAGNA OG EKKI SÍÐUR UM JÓLIN SEM ER FÆÐINGARHÁTÍÐ FRELSARANS JESÚS KRISTS.

EFTIR DAGINN Í DAG,AÐ ÞVÍ AÐ ÉG BEST VEIT, BYRJAR DAGINN AÐ LENGJA OG BIRTAN EYKST DAG FRÁ DEGI. þetta er mörgum svo mikilvægt því að myrkið sem að oft grípur um sig í sálinni,er oftast mest þegar dagurinn er stystur.

Þetta segja mér margir sem glíma við þunglyndi og hlakka til þess dags sem að eykur sólarljósið hér á norðurhveli jarðar.

Um miðjan Janúar, er hægt að sjá verulegan mun á birtunni og þá fer að halla smátt og smátt að vori og svo að  sumrinu með allri sinni fegurð.

Já,það er ástæða til að fagna.

Vera vitni að því þegar Ljósið yfirvinnur myrkrið.

Svo eru Jólin að renna í garð og er það líka mikil hátíð sem að við minnumst sem TRÚUM á Frelsarann Jesús Krist sem kom til að frelsa okkur frá syndinni.

Mörgum er þessi tími svo heilagur,

að fá að minnast þess

og hugleiða ORÐIÐ sem er svo mikilvægt

og miklu mikilvægra og gleðilegri Boðskapur

en flestir gera sér grein fyrir.

 

Ég persónulega fór á mis við nánast allt Trúarlíf,

margra hluta vegna,

en ég get þakkað fyrir það í dag þó seint sé

að hafa meðtekið Kristna Trú á nýjan leik.

Mig langar að segja við ykkur

sem ekki hafið meðtekið trú á Jesús Krist.... hugsið málið vel.

Hér ríkir trúfrelsi,..................  en til er aðeins ein TRÚ .

Trúin á Guð föður almáttugan skapara himins og jarðar,

son hans Jesús Krist sem kom til að frelsa okkur frá syndinni ,

svo að við gætum eignast EILÍFT lÍF.

Amen.

 

 

 


Nú fer að líða að jólunum og þá er það friður og kærleikur,gleði og trú sem ráða för í hjarta flestra !

Af hverju er  ég tala um jólin núna,það er kannski vegna þess að ég ætlaði að vera tímanlega með allt saman sem húsbóndi á minu heimili.Er reyndar einn og tek að mér öll hlutverkin þá er ég allt og  það er ekki allveg að ganga upp hjá mér og til þess eru ýmsar ástæður.              Því allt í einu gaus upp svona

Lungnasýkingaflensa og mikið er það ömurleg flensa og ekkert annað fyrir mig en að keyra á því óvinsæla Pensínilíni en áhrifríka fyrir mig til batnaðar.Égg er nefnilega sá sem rek mitt heimili einn eins og svo margir og þar sem enga aðstoð er að fá ,þá er bara að fara í DJÚPU laugina með allt sem snýr að heimili.

Ég hef ekki getað byrjað að skreyta,það kemur!

Öll kortin eru eftir....ekki eru þau mörg.

Svo er það maturinn það þarf að elda og ég er orðinn hundlatur við það og gleymi því einhverja daga nema morgunn gutl af skyri og yogúrt,með inntöku lyfjanna.

Svo ræðst það af því,  hvort mig svengir eða ekki ,hvort fer meira niður í mig þann daginn.

Ég blogga töluvert og sérstaklega síðustu tvo mánuðina,og allir vita af hverju það er.

það er góð afþreying til þess að teygja tímann,auðvitað Blogga ég mest um þá sem                  MINNA MEGA SÍN .

Allt það fólk höfðar til mín og svo hin síðustu ár hef ég sjálfur dvalið í þeim hópi vegna minna áfalla.

En ég sé alltaf eitthvað gott framundan og það er björgunarbáturinn minn.

Ætli ég fari ekki að auglýs eftir "Góðri konu" með alla bestu kostina sem henta mér (Eigingjarn).

Ég get allveg tekið undir það að einveran er manninum/konunni ekki holl . nema síður sé.

það er nauðsynlegt að hafa samferðakonu þegar lagt er í síðustu BREKKURNAR,ÞAÐ ER ÉG VISS UM.

Í dag þarf ég að fara á fjóra staði sem ég nauðsynlega þarf að sinna þó ég sé með hita ,Lungnasýkingu og hálf vankaður.

Ég er orðinn vanur slíku ,nema að ég sé þeim mun veikari,NEI ekkert bölsýnistal.

Brosa á móti heiminum og leggja af stað,það hefur gefist best.

Og ég ætla að framfylgja því ef Guð lofar í dag.

Göngum Brosandi mót nýjum degi.......hann hefur sín fyrirheit.Heart

 

 


ÞESSU GLEYMI ÉG ALDREI,SVO STERKT VAR AUGNABLIKIÐ SEM ÉG FANGAÐI.

ÉG átti að fara til Reykjavíkur og láta taka úr mér kirtlana.Ég hugsaði nú ekki mikið út í það..................annað og meira var í uppsiglingu. Ferð til Reykjavíkur á jeppanum hans Kristjáns frá Garðstöðum heimsþekktur Framsóknarmaður á Ísafirði sem meðal annars neitaði því að sett yrði annað bensín en frá ESSO annars keyrði hann ekki.Kristján var sérstakur en góður kall.

Ferðin byrjaði á því að jeppinn var hífður um borð í Faggann sem kallaður var svo  en skipið hét fullu nafni Fagranes og fór með alla aðdrætti til bænda við Ísafjarðardjúp og víðar um Vestfirði.Við fengum sannkallað rjómalogn inn djúpið á sólríkum sumarmorgni og út um allt flugu sjófuglarnir og er mér sérstaklega í minni lágflug Lundans en töluvert var af honum fyrir utan alla sjófuglaflóruna sem var þarna. 

 Og svo áður en ég vissi af var  Fagginn kominn að Melgraseyri eða Arngerðareyri ég man ekki hvor þeirra það var en það voru bara þessar tvær hafnir sem Fagginn gat lagst upp að til að hífa vörur og bíla í land. Willysinn hans Kristjáns var hífður í land og við hófum ferðalagið.

Pabbi þekkti alla bændur við djúp þar sem hann vann hjá Kaupfélagi Ísfirðinga við að útvega bændunum allt sem að þeir þurftu til búskapsins.Það var hans starf. Og þórður bróðir hans vann þá í Vöruskemmu og til gamans þá byrjuðu þeir báðir ungir menn töluvert innan við tvítugt að vinna hjá Kaupfélaginu.Faðir minn starfaði þar þangað til hann lést langt um aldur fram en Þórður bróðir hans hætti þar háaldraður.Sem sagt þeir unnu báðir hjá sama fyrirtækinu alla sína starfsæfi.

Jæja,nú var lagt af stað en ekki keyrt lengi og komið við á einum bóndabænum.Þar áttum við að borða áður en lagt væri af stað til Reykjavíkur.

Okkur var boðið til stofu á meðan við biðum þess að maturinn væri tilbúinn og þar þurftu bræðurnir að tala við bóndann sem ég man ekki hver var.En svo var kallað í matinn og við settumst til borðs og man ég það að borið var fram saltkjöt með öllu tilheyrandi.

Nú kemur að því sem hefur alla tíð verið sem inngreypt mynd í huga mér.

Mér var litið í áttina að eldavélinni sem var kolaeldavél og við hliðina á henni sat maður á gólfinu og hann hélt á hvítemelaðri skál og lamdi henni við fætur sér og hann var allur svo skrýtinn að mér brá,  allt í einu kom bóndafrúin tók af honum skálina og mokaði einhverju þykku mauki í dolluna .

Um leið og maðurinn hafði fengið skálina aftur byrjaði hann að moka úr henni upp í sig með Guðsgöfflunum og var snöggur að því svo barði hann skálinni í lærið á sér þar til hann fékk viðbót og fór það sömu leið á ljóshraða ofan í hann.

Mér var svo mikið um þetta að ég gleymdi að borða..... og starði á manninn,svo rann það upp fyrir mér hann var ekki eins og við hin.

Hann var allt öðruvísi og ég fann til með honum þar sem hann sat eftir að hafa borðað upp úr tveimur skálum og fékk svo ekki meir.

Síðan var hann þveginn um hendur og allt í einu var hann horfinn,ég sá hann ekki meir.

Þarna sá ég sem barn í fyrsta sinn

andlega og líkamlega fatlaðan mann

og var þetta svo mikil lífreynsla

að mér leið ekki vel næsta klukkutímann.

Á þessum tíma var ekki talað um svona einstaklinga,þeir bara voru......

Fljótlega eftir matinn var svo lagt af stað suður .........................................

 

Gangið glöð inn í daginn, því hann kemur og fer

eins og hinir sem á undan komu.Heart


AÐ BJARGA SÉR. ÓTRÚLEG EN SÖNN LÍFSBJARGARSAGA HVERNIG HÆGT ER AÐ BJARGA SÉR MEÐ ÞVÍ AÐ NOTA LEIKFANG !

FYRIR STUTTU SÍÐAN ÁTTI ÉG ERINDI Í BANKA OG ÞAR SEM ÉG BEIÐ EFTIR AFGREIÐSLU HITTI ÉG SVEITUNGA MINN OG EINS OG GENGUR TÓKUM VIÐ SPJALL SAMAN.EN HANN ER FYRRVERANDI SKIPSTJÓRI UPP Á GAMLA TÍMANN OG ÞÁ URÐU MENN AÐ VERA ÚTSJÓNARSAMIR MEÐ ALLT UM BORÐ SVO VEL FÆRI, EN NÚ KEMUR SAGAN.

HANN Á HÚSBÍL OG KEYRIR HINGAÐ OG ÞANGAÐ,HEFUR ÓSEÐJANDI ÁHUGA AÐ VEIÐA I ÖLLUM VÖTNUM SEM HANN FINNUR OG Í SUMAR FANN UPP NÝJA VEIÐIAÐFERÐ SEM GERÐI HONUM KLEYFT AÐ MOKA UPP SILUNGNUM ÚR ÁKVEÐNU VATNI VIÐ EINA AF HEIÐUNUM OKKAR.

HANN KEYRIR FAST AÐ VATNINU AÐ KVÖLDLÆGI GERIR SVO KLÁRT FYRIR NÆTURVÐVIÐVERU.

ÞÁ ER KOMIÐ AÐ VEIÐUNUM. ÞAÐ ER SILUNGANET OG FJARSTÝRÐUR BÁTUR Í STÆRRA LAGINU.HANN GERIR ALLT KLÁRT Í FJÖRUNNI . SENDIR SÍÐAN FJARSTÝRÐA BÁTINN SINN ÚT Á MITT VATNIÐ MEÐ NETIÐ ÁSAMT LÍNU SEM NÆR ÞAÐ LANGT ÚT .

 Í BÁTNUM ER SLEPPI OG KRÆKJUBÚNAÐUR SVO LEGGUR HANN NETINU,SIGLIR SVO  ÞEIM FJARSTÝRÐA TIL BAKA,FER SÍÐAN ELDAR SÉR SÍÐBÚINN KVÖLDVERÐ HORFIR Á SJÓNVARP EÐA FÆR SÉR SVO GÖNGUTÚR FYRIR HÁTTINN.

MORGUNIN EFTIR. ÞÁ SENDIR HANN BÁTINN GÓÐA TIL AÐ NÁ Í NETA LEGGINN(LÍNUNA) OG SVO ÞEGAR BÁTURINN KEMUR MEÐ LÍNUNA.ÞÁ BYRJAR HANN AÐ DRAGA NETIÐ/IN SJÁLFUR Á HANDAFLI OG YFIRLEITT ER FENGURINN ÞAÐ GÓÐUR AÐ ÞAÐ ER ALLTAF FULL FRYSTIKISTAN AF SILUNGI HEIMA HJÁ HONUM FYRIR SIG OG SÍNA ,GESTI OG GANGANDI.

ÞAÐ VAR AÐFERÐIN HJÁ HONUM AÐ NOTA FJARSTÝRÐA BÁTINN SINN SEM HREIF MIG.

AÐ LÁTA SÉR DETTA ÞETTA Í HUG OG MOKFISKA Í VATNINU SEM FÁIR FÁ FISK OG ÞAÐ VAR ALLT GÓÐUR OG VEL HALDINN FISKUR.

ÞEIR FISKA SEM RÓA......ÚR BÓKINNI TIL SJÓS  MEÐ ÞÓA !Smile


NÚ ER SUNNUDAGUR 16 NÓVEMBER OG KOMIÐ MÁL Á AÐ SEGJA EITTHVAÐ FALLEGT.ÞAÐ ER ALLT OF MIKIÐ AF HINU SLÆMA OG LEIÐINLEGA. EIGINLEGA.!

BÖRNIN ERU MÉR OFT HUGLEIKIN,TILVERA ÞEIRRA,SKOÐANIR,OG HVERNIG ÞAU TAKA Á HLUTUNUM.ÉG BÝ Í BLOKK OG ER OFT AÐ HORFA Á ÞAU AÐ LEIK FYRIR UTAN HJÁ MÉR. ÞESSI BÖRN ERU SVONA Á ALDRINUM 3 TIL 6 ÁRA  OG ERU SNILLINGARIRNIR (SUM ÞEKKI ÉG MEÐ NAFNI ÖNNUR EKKI) ÞVÍ HJÁ ÞEIM ERU TÆKIFÆRIN SVO MÖRG,MARGT AÐ LÆRA OG SKOÐA OG EKKI VANTAR ÁHUGAN Á ÖLLU SEM AÐ ÞAU TAKA SÉR FYRIR HENDUR.Happy

ÞAÐ ER AÐEINS EITT SEM STOPPAR ÞAU OG ÞAÐ ER VINDURINN. ÞAU GETA ALLT Í EINU TEKIÐ Á SKRIÐ ÞÁ ER ORÐIÐ SVO HVASST AÐ ÞAU STANDA EKKI Í FÆTURNA,EÐA ÞAU NÁ VARLA ANDANUM.EN AÐ RIGNI HRESSILEGA ER EKKERT MÁL EÐA OFANKOMAN SVO MIKIL ÞEGAR SNJÓAR OG ÞAÐ ERU ÞEIRRA BESTU STUNDIR.Tounge

ÞÁ ERU ÞAU AÐ ERFIÐA VIÐ AÐ BÚA TIL HITT OG ÞETTA OG ALLTAF JAFN ÁNÆGÐ YFIR ÞVÍ SEM ÞAU HAFA SKAPAÐ.Cool

NÚNA Í ÞESSUM TÖLUÐU ORÐUM ERU ÞAU NOKKUR AÐ LEIKA SÉR Á ÞOTU NIÐUR SVOLÍTIN BRATTA OG ÞAÐ ER LABBAÐ UPP Á BRÚN OG RENT SÉR NIÐUR HALLAN SVO ER HLEGIÐ OG HLEGIÐLoL ÞEGAR ÞAU STAÐNÆMAST Á GRASBALANUM OG ÞEYTAST AF ÞOTUNNI Í ALLAR ÁTTIR SVO ER LABBAÐ UPP AFTUR OG NIÐUR.... HLEGIÐGrin OG SMÁGRÁTURCrying HJÁ EINVERJU ÞEIRRA EN ÞAÐ ER BARA AUGNABLIK....... LABBAÐ UPP EINA FERÐINA ENN OG NIÐUR OG HLEGIÐ ÓGURLEGALoL. SNJÓRINN ER AÐ FARA.Frown

ÞAU VITA EKKI HVAÐ BÍÐUR ÞEIRRA ÞEGAR ÞAU STÆKKA, ALLUR ÞESSI FJÁRHAGSBAGGI SEM ER VERIÐ AÐ SETJA Á HERÐAR ÞEIRRA...........EN LÍFIÐ ER SVONA. GAMAN Í DAG SVO KEMUR MORGUNDAGURNN MEÐ SITT OG ENGINN VEIT HVAÐ ÞAÐ ERWoundering...................SEM BETUR FER.

KÆRLEIKSKVEÐJUR TIL ALLRA.Heart


HLÝLEG STEMMING ER AF HINU GÓÐA. NAUÐSYNLEGT AÐ LITA ÞJÓÐARSÁLINA BJARTARI LITUM EN HÚN HEFUR VERIÐ UNDANFARIÐ. OG ÞAÐ MÁ GERA MEIRA AF SVIPUÐUM UPPÁKOMUM.+JÁKVÆTT.

AF HINU GÓÐA OG GOTT FRAMTAK TÓNLISTARFÓLKS.GÓÐAR HLÓMSVEITIR OG LISTAMENN SEM LÖGÐU  HÖND Á PLÓGIN TIL AÐ LÉTTA LUNDINA.OG ALLT FÓR FRIÐSAMLEGA FRAM.HVERNIG VÆRI AÐ FÁ EITHVAÐ ANNAÐ Á NÆSTU HELGI .

TIL DÆMIS TRÚBATORA OG UPPISTANDARA ÁSAMT ÖÐRUM GLEÐIGJÖFUM. FRÁBÆRT,FRÁBÆRT FRAMTAK LISTAFÓLKS TAKK FYRIR KVÖLDIÐ.

EN ÉG VAR EKKI Á STAÐNUM ÞVÍ .ÉG VAR OF VEIKUR TIL ÞESS Í ÞETTA SINN, ÞVÍ MIÐUR,  EN MÉR FINNST ALLT Í LAGI AÐ ÞAKKA FYRIR OG ÞAÐ ER MIKILVÆGT Á TÍMUM SEM ÞESSUM.

VIÐ EIGUM SVO MARGT AÐ ÞAKKA.

KÆRLEIKSKNÚS Á ALLT LISTAFÓLKIÐ.HeartHeartHeart


mbl.is „Hlýleg“ stemmning í Höllinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar þessi dagur er allur kemur SUNNUDAGUR OG ÞÁ SKULUM VIÐ SAMEINAST Í BÆN FYRIR LAND OKKAR OG ÞJÓÐ. VIÐ GETUM BEÐIÐ EIN MEÐ GUÐI EÐA TVÖ EÐA FLEIRI SAMAN OG VIÐ GETUM BEÐIÐ MEÐ FJÖLSKYLDUNNI.

FYRST AÐ ÉG GAT EFTIR ÁRATUGI FARIÐ Á HNÉN OG BEÐIÐ TIL GUÐS FÖÐURS OKKAR FYRIR TILSTILLI jESUS KRIST, ÞÁ HLJÓTA FLEIRI AÐ GETA GERT ÞAÐ. EF AÐ VILJI ER HJÁ OKKUR AÐ ÁSTAND ÞJÓÐAR OKKAR LAGIST

ÞÁ EINFALDLEGA BIÐJUM VIÐ ALGÓÐAN GUÐ AÐ GERA OKKUR ÞAÐ KLEYFT FYRIR ALMÁTT HANS SEM SKÓP HIMINN OG JÖRÐ OG SENDI OKKUR SON SINN EINGETINN TIL AÐ FRELSA OKKUR AF ÖLLUM OKKAR SYNDUM.

MÁTTUR BÆNARINNAR ER MIKILL......ÞAÐ MÁTTU VITA.

SAMEINUMST ÖLL, Í BÆN Á MORGUNN SUNNUDAG,ÞJÓÐ VOR TIL HEILLA.


ÞEGAR ÉG KOM TIL HENNAR SAGÐI HÚN; ÞAÐ ER GOTT ÞEGAR ÞÚ KEMUR EN VONT ÞEGAR ÞÚ FERÐ. SAGÐI MÉR ELDRI VINKONA MÍN MEÐ ALZHEIMER SJÚKDÓM OG BJÓ EIN, ÚR ALFARARLEIÐ !

SÍÐASTLIÐNA NÓTT LEITAÐI ÞESSI SETNING HENNAR SVO STÍFT Á MIG  að ég ákvað að skrifa  um þessa indælu konu sem nú er gengin.Ég átti ótal margar samræðustundirnar með henni um lífið tilgang þess,væntingar og vonir,bjarta daga og dimma daga,þau ár sem við þekkumst.

það var sama hvað gekk á í kring um hana er það að öllu tók hún með ÆÐRULEYSI.

Áföllum mætti hún með sama æðruleysinu og lognið er í hvassviðri.

FYRSTA árið sem tók að bera á minnisleysi og ýmsu öðru sem einkennir  Alzheimer sjúklinga, reyndi hún af mesta megni að fela það með sínu stolti sem var laust við hroka.

Allt átti þetta eftir að breytast þar til yfir lauk.En það sem mig langaði að segja ykkur frá hvað hún var þakklát fyrir heimsóknirnar sem voru ófáar af minni hálfu síðustu tvö árin sem að hún lifði.En undir það síðasta var hún komin á sjúkrahús.

Mikið fann hún til einstæðingsskapar þegar hún áttaði sig á því að það var farið að halla undan fæti. Eins og ef ég þurfti að fara frá henni í vondu veðri,þá leið mér ekki vel ,ég reyndi að hringja einu til tvisvar yfir nótt ef svo var.

Þessa setningu heyrði ég oftar enn ekki," Getur þú ekki setið lengur,liggur þér mikið á núna Þórarinn" og þar fram eftir götunum eða þá þessa setningu" viltu taka utan um mig áður en þú ferð" og hvað ég skynjaði einstæðingin og einmanakenndina hjá henni.Það voru oft mjög erfið spor að fara frá henni. Það er ekki hægt að lýsa því.

Við vorum alla tíð góðir og einlægir vinir.

Ég er svona að hugsa afhverju ég er að láta þetta í loftið, en þessi hugsun um hana sem kom svo sterkt yfir mig ,varð ég að koma á prent, annars hefði þessi hugsun ekki látið mig í friði. það eru svo margir þarna úti á öllum aldri sem þurfa sanna vináttu og faðmlag annars lagið. Og ef ekki núna ,hvenær þá ?

Í einlægri von um að þú getir sýnt einhverjum,

 sem að þú veist að þarfnast . VINÁTTU OG KÆRLEIK.Heart


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband